Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 21. júlí 2017 19:49
Dagur Lárusson
Arnautovic stóðst læknisskoðun
Mynd: Getty Images
Marko Arnautovic var rétt í þessu að standast læknisskoðun hjá West Ham en Sky Sports greinir frá þessu.

Arnautovic mun að öllum líkindum skrifa undir samning hjá West Ham á morgun en hann verður þá annar af tveimur leikmönnum sem að liðið mun fá um helgina en þeir eru einnig við það að landa Javier Hernandez, leikmanni Bayern Leverkusen.

Félagsskiptasaga Arnautovic er búin að vera í gangi í nokkrar vikur núna en West Ham þurfti að bjóða í heildina þrjú tilboð áður en að Stoke ákvað að samþykkja.

Arnautovic skoraði 6 mörk og lagði upp 7 á síðasta tímabili með Stoke.
Athugasemdir
banner
banner