Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 21. júlí 2017 22:26
Elvar Geir Magnússon
Tólfan mætir til Hollands með nýja fána
Mynd: Facebook
Meðlimum stuðningssveitarinnar Tólfan mun fjölga hér í Hollandi fyrir leikinn gegn Sviss á morgun.

Búast má við ansi góðri stemningu á Tjarnarhæðinni í Doetinchem meðan á leik stendur en reiknað er með 3.000 Íslendingum á leiknum.

Íslensku stuðningsmennirnir átu franska stuðningsmenn í fyrsta leiknum og vonandi verður sama uppi á teningnum á morgun.

Við fáum að sjá tvo nýja fána á leiknum á morgun. Myndir segja meira en þúsund orð.



Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.

Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner