Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 23. júlí 2017 05:55
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
EM kvenna í dag - England mætir Spáni
Mynd: Getty Images
Önnur umferð D-riðils Evrópumóts kvenna hefst í dag, og þar eru tveir leikir á dagskrá.

Í fyrri leik dagsins mætast Skotland og Portúgal, bæði liðin töpuðu fyrsta leik sínum á mótinu og þurfa því nauðsynlega á sigri að halda ef þau ætla sér upp úr riðlinum.

Skotland tapið illa fyrir Englandi í fyrstu umferð, 6-0. Nágrannaslagur Spánar og Portúgal endaði með 2-0 sigri spænska liðsins.

England og Spánn mætast síðan í síðari leik dagsins sem hefst klukkan 18:45 .

Sunnudagur 23. júlí

16:00 Skotland - Portúgal (RÚV 2)
18:45 England - Spánn (RÚV)
Athugasemdir
banner
banner