Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 22. júlí 2017 12:04
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
AC Milan fór illa með Bayern München
Mynd: Getty Images
Bayern München 0 - 4 AC Milan
0-1 Franck Kessie ('14)
0-2 Patrick Cutrone ('25)
0-3 Patrick Cutrone ('43)
0-4 Hakan Calhanoglu ('85)

AC Milan fór illa með Þýskalandsmeistara Bayern München á International Champions Cup-æfngamótinu í dag. Leikurinn fór fram í Shenzhen í Kína í morgunsárið.

Lið AC Milan hefur breyst mikið í sumar. Kínverskir eigendur tóku við fyrr í sumar og þeir hafa dælt peningum í félagið.

Margir leikmenn hafa komið, þar á meðal Franck Kessie, en hann skoraði fyrsta mark leiksins í dag.

Patrick Cutrone bætti við tveimur mörkum fyrir leikhlé og áður en leikurinn klárastði gerði Hakan Calhanoglu fjórða markið.

Lokatölur 4-0 í öruggum og óvæntum sigri AC Milan!

Byrjunarlið Bayern: Früchtl, Rafinha, Hummels, Alaba, Ribery, Javi Martinez, Bernat, Tolisso, Müller, Lewandowski, Coman.

Bryjunarlið Milan: Donnarumma, Zapata, Musacchio, Abate, Rodriguez, Montolivo, Bonaventura, Kessie, Borini, Niang, Cutrone.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner