Nikola Trujic, miðjumaður serbneska liðsins FK Vojvodina, varð fyrir árás sinna eigin stuðningsmanna fyrr í þessum mánuði.
Leikmaðurinn segir frá þessu sjálfur, en hann segir að stuðningsmenn hafi mætt inn í búningsklefa liðsins eftir tap gegn Ruzomberok frá Slóvakíu í Evrópudeildinni.
FK Vojvodina féll úr leik eftir tapið og stuðningsmenn voru alls ekki sáttir með það. Þeir létu reiði sína bitna á Trujic.

„Ég var tekinn hálstaki, ég var sleginn í hausinn," sagði Trujic við serbneska fjölmiðla eftir atvikið.
Leikmannasamtökin Fifpro hafa beðið UEFA um að rannsaka málið.
Athugasemdir