„Þetta var góður sigur og góður leikur," sagði Atli Guðnason, leikmaður FH, eftir 2-0 sigur á ÍA í Pepsi-deild karla í dag.
Lestu um leikinn: FH 2 - 0 ÍA
Atli átti flottan leik og lagði upp bæði mörk FH í leiknum.
„Þetta er alltaf barátta á móti Skagamönnum, þeir eru grimmir og það er erfitt að spila við þá. En það opnast alltaf á tímum, það er bara spurning hvenær það er og hvort maður nýti það."
FH fer til Slóveníu í nótt, en liðið er að fara að spila Meistaradeildarleik gegn Maribor þar í landi.
„Næsti leikur úti í Slóveníu verður mjög erfiður. Það er ekki deildarleikur fyrr en eftir tvær vikur og nú er deildin í pásu. "On to the next job"," sagði Atli við Fótbolta.net.
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir