Víkingur R. hefur fengið framherjann Nikolaj Hansen í sínar raðir frá Val.
Nikolaj fær leikheimild með Víkingi á morgun og hann getur því spilað með Víkingi gegn KR annað kvöld.
Nikolaj fær leikheimild með Víkingi á morgun og hann getur því spilað með Víkingi gegn KR annað kvöld.
Nikolaj hefur ekki verið í leikmannahópi Vals í síðustu umferðum og hann færðist ennþá neðar í goggunarröðinni þegar landi hans Patrick Pedersen fékk leikheimild í síðustu viku.
Í sumar hefur Niolaj skoraði tvö mörk í sex leikjum í Pepsi-deildinni en hann mun nú leika með Víkingi út sumarið.
Víkingur gerði fyrr í vikunni starfslokasamning við framherjann Ivica Jovanovic og Nikolaj fyllir skarð hans.
Athugasemdir