Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   sun 23. júlí 2017 07:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Herrera: De Gea er markmaður sem vinnur stig
Ander Herrera og David de Gea
Ander Herrera og David de Gea
Mynd: Getty Images
Ander Herrera miðjumaður Manchester United vill ekki missa markvörðinn David de Gea frá félaginu en hann hefur verið mikið orðaður við Real Madird.

„Hann er markmaður sem vinnur stig, sagði Herrera og bætti við, „það er mjög mikilvægt. Ég vil hafa hann áfram hérna, til að spila með honum, af því að hann er frábær markmaður og líka vinur minn og ég held að fólk sjái það að hann er með fulla athygli á Manchester United."

Ander Herrera segist alveg vera viss um það hver er besti markvörður í heimi.

„Fyrir mér er De Gea sá besti í heimi, svo ég vil að hann verði áfram hjá United."

Félagarnir Ander Herrera og David de Gea leika að öllum líkindum fyrir Manchester United í kvöld þegar liðið mætir Real Madrid í æfingamótinu, International Champions Cup.
Athugasemdir
banner
banner
banner