Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 23. júlí 2017 12:15
Bergur Tareq Tamimi
Rojo frá út árið
Mynd: Getty Images
Leikmaður Manchester United, Marcos Rojo, gæti orðið frá út árið 2017 vegna hnémeiðslanna sem hann er búinn að vera að glíma við.

Þetta sagði Mourinho á blaðamannafundi í morgun.

Varnarmaðurinn hefur verið að kljást við hnémeiðslin frá því í apríl, fór í aðgerð í maí og hefur síðan þá verið að reyna að ná bata.

En batinn hefur tekið lengri tíma en áætlað var og Mourinho staðfesti það á blaðamannafundinum í dag að hann yrði ekki leikfær fyrr en í desember eða jafnvel janúar.

Mourinho staðfesti það einnig að bæði Luke Shaw og Ashley Young munu ekki ná byrjuninni á næsta tímabili. Hann telur að Shaw verði tilbúinn í september og Young í október.
Athugasemdir
banner
banner
banner