Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 24. júlí 2017 11:00
Magnús Már Einarsson
Van Dijk ekki með Southampton í æfingaferð
Virgil van Dijk.
Virgil van Dijk.
Mynd: Getty Images
Hollenski varnarmaðurinn Virgil van Dijk er ekki í 25 manna leikmannahópi Southampton sem er farinn til Frakklands í æfingaferð.

Hinn 26 ára gamli Van Dijk hefur æft einn undanfarna daga eftir að hann tjáði Mauricio Pellegrino, stjóra Southampton, að hann vildi fara frá félaginu.

Van Dijk var sterklega orðaður við Liverpool fyrr í sumar en í síðasta mánuði sendi félagið frá sér yfirlýsingu þess efnis að félagið væri hætt við að reyna að fá Hollendinginn.

Liverpool sendi yfirlýsinguna eftir að Southampton kvartaði til enska knattspyrnusambansins yfir því að Liverpool hefði rætt ólöglega við Van Dijk.

Framtíð Hollendingsins er núna í mikilli óvissu en hann æfir áfram einn á Englandi á meðan Southampton fer í æfingaferð til Frakklands.
Athugasemdir
banner
banner
banner