Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 24. júlí 2017 15:30
Magnús Már Einarsson
Henderson: Verður erfitt fyrir Klopp að velja byrjunarliðið
Henderson í leiknum í gær.
Henderson í leiknum í gær.
Mynd: Getty Images
Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, segir að það verði erfitt fyrir Jurgen Klopp að velja byrjunarliðið miðað við frammistöðu leikmanna á undirbúningstímabilinu.

Philippe Coutinho og Mohamed Salah skoruðu í 2-1 sigri á Leicester í æfingamóti í Hong Kong í gær en á dögunum skoruðu framherjarnir Dominic Solanke og Divock Origi í 2-0 sigri á Crystal Palace.

Hörð samkeppni er um fremstu stöðurnar hjá Liverpool þessa dagana.

„Mér fannst strákarnir vera frábærir í fyrri hálfleik. Við vorum mjög sóknarsinnaðir og skoruðum tvö mörk þökk sé Mo (Salah) og Phil (Coutinho)," sagði Henderson.

„Við erum með stóran hóp og marga góða leikmenn svo það verður erfitt fyrir stjórann að velja byrjunarliðið."
Athugasemdir
banner