Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 26. júlí 2017 06:00
Magnús Már Einarsson
Grindavík auglýsir eftir yfirþjálfara
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Knattspyrnudeild Grindavíkur auglýsir eftir yfirþjálfara yngri flokka. Leitað er að metnaðarfullum, skipulögðum, áreiðanlegum og kraftmiklum einstaklingi með reynslu og menntun í knattspyrnuþjálfun.

Umsækjendur þurfa að eiga auðvelt með mannleg samskipti og leita leiða til að efla en frekar yngri flokka starf félagsins. Yfirþjálfari hefur m.a. yfirumsjón með faglegu barna- og unglingastarfi sem skal unnið samkvæmt siðareglum, uppeldisáætlun og lögum félagsins sem og ítarlegri starfslýsingu sem mun fylgja ráðningarsamningi. Hreint sakavottorð skilyrði.

Umsóknarfrestur er til 15.ágúst 2017. Umsókn ásamt ferilskrá óskast sent á Knattspyrnudeild Grindavíkur [email protected] en nánari upplýsingar eru gefnar í síma deildarinnar 426-8605.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner