Gonzalo Higuain, leikmaður Ítalíumeistara Juventus, veit að hann verður að skora meira í Meistaradeildinni.
Þessi argentíski sóknarmaður hefur skorað 18 mörk í Meistaradeildinni á ferli sínum með Real Madrid, Napoli og Juventus.
Þessi argentíski sóknarmaður hefur skorað 18 mörk í Meistaradeildinni á ferli sínum með Real Madrid, Napoli og Juventus.
Hann skoraði fimm í þessari sterkustu keppni Evrópu á síðasta tímabili er Juventus komst alla leið í úrslit, en þar var niðurstaðan 4-1 tap gegn Real Madrid. Higuain stefnir á sigur á næsta tímabili.
„Allegri segir að ég þurfi að skora meira í Meistaradeildinni og það er rétt hjá honum," sagði Higuain við Football Italia.
„Ég vil alltaf vinna og skora meira. Við viljum bæta upp fyrir síðasta tímabil," sagði Higuain enn fremur.
Athugasemdir