Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 26. júlí 2017 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mane mætti á æfingu í gær - Allur að koma til
Mane er að jafna sig.
Mane er að jafna sig.
Mynd: Getty Images
Góðar fréttir fyrir stuðningsmenn Liverpool. Sadio Mane tók þátt að fullu í æfingu liðisins í Liverpool í gær.

Mane hefur verið að jafna sig eftir hnéaðgerð sem hann fór í eftir að hafa meiðst í leik gegn Everton á síðustu leiktíð. Leikurinn var í apríl og Mane kom ekki meira við sögu á tímabilinu.

Mane, sem skoraði 13 mörk í 27 leikjum í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili, fór ekki með í æfingaferð til Hong Kong í síðustu viku og var þess í stað að vinna sjálfur á æfingasvæði Liverpool.

Hann er nú byrjaður að æfa aftur með liðsfélögum sínum, en það eru gleðifréttir fyrir stuðningsmenn Liverpool.

Danny Ings, sem hefur verið frá síðan í október, mætti líka á æfingu. Ings kom til Liverpool árið 2015, en hefur lítið spilað vegna meiðsla.



Athugasemdir
banner
banner
banner