Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 25. júlí 2017 19:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tveir Spánverjar í Hugin (Staðfest)
Huginn fær liðsstyrk.
Huginn fær liðsstyrk.
Mynd: Fótbolti.net - Hanna Símonar
Í dag greindi Huginn frá Seyðisfirði að tveir nýir leikmenn hefðu samið um að spila með félaginu.

Um er að ræða tvo spænska leikmenn.

Alberto Jesus Garcia Balta er varnarmaður, en Daniel Garceran Moreno leikur sem sóknarmaður.

Garceran Moreno hefur leikið með liðum í neðri deildum Englands. Á veraldarvefnum kemur fram að hann hafi spilað með Banbury United í ensku utandeildinni fyrir nokkrum árum.

Huginn er að berjast um sæti í Inkasso-deildinni. Liðið er sem stendur í þriðja sæti 2. deildar með 24 stig.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner