Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 25. júlí 2017 19:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Phil Bardsley til Burnley (Staðfest)
Jói Berg fær annan liðsfélaga frá Stoke
Mynd: Heimasíða Burnley
Burnley hefur keypt varnarmanninn Phil Bardsley frá Stoke fyrir óuppgefna upphæð. Hinn 32 ára gamli Bardsley skrifaði undir tveggja ára samning við Burnley í kvöld.

Bardsley, sem er fyrrum leikmaður Manchester United og Sunderland, var í mánuð á láni hjá Burnley árið 2006 og er nú mættur aftur. Hann er fjórði leikmaðurinn sem Burnley fær í sumar.

„Ég finn enn fyrir eldmóði til þess að afreka hluti í fótbolta og þetta er frábært tækifæri," sagði Bardsley.

Burnley hélt sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og þeir ætla að gera það aftur á næstu leíktíð. Jack Cork er kominn frá Swansea, Charlie Taylor frá Leeds og þá er Jonathan Walters einnig kominn frá Stoke. Bardsley er því annar leikmaðurinn sem Burnley fær til sín frá Stoke City þetta sumarið.

Jóhann Berg Guðmundsson leikur með Burnley, en hann er að fara að hefja sitt annað tímabil hjá félaginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner