Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 26. júlí 2017 14:00
Magnús Már Einarsson
Mónakó í viðræðum við Mbappe um nýjan samning
Mynd: Getty Images
Mónakó er í viðræðum um nýjan samning við framherjann unga Kylian Mbappe.

Hinn 18 ára gamli Mbappe hefur verið sterklega orðaður við Real Madrid undanfarna daga.

„Við erum í viðræðum um framlengingu við Kylian og vonandi náum við samkomulagi," sagði Vadim Vasilyev varaforseti Mónakó.

Fyrr í mánuðinum sakaði Mónakó félög um að hafa rætt ólöglega við Mbappe.

Mbappe sló í gegn með Mónakó á síðasta tímabili en hann hjálpaði liðinu að verða franskur meistari.
Athugasemdir
banner
banner
banner