Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mið 26. júlí 2017 17:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið FH í Slóveníu: Emil Páls og Pétur koma aftur inn
Emil Pálsson.
Emil Pálsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH mætir slóvensku meisturunum í Maribor í fyrri leik liðanna í 3. umferð í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu

FH vann Víking Götu frá Færeyjum í síðustu umferð, en í kvöld bíður þeirra gríðarlega erfitt verkefni.

Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, gerir tvær breytingar á liði sínu frá leiknum gegn ÍA í Pepsi-deild karla á laugardaginn.

Robbie Crawford og Guðmundur Karl Guðmundsson setjast á bekkinn, en inn í þeirra stað koma Emil Pálsson og Pétur Viðarsson.

FH spilar í 4-4-2 samkvæmt heimasíðu Uefa.

Byrjunarlið FH:
1. Gunnar Nielsen (m)
4. Pétur Viðarsson
5. Bergsveinn Ólafsson
7. Steven Lennon
8. Emil Pálsson
9. Þórarinn Ingi Valdimarsson
10. Davíð Þór Viðarsson (f)
11. Atli Guðnason
18. Kristján Flóki Finnbogason
20. Kassim Doumbia
21. Böðvar Böðvarsson

Leikurinn hefst kl. 18:20.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner