„Það er lítið hægt að segja. Þetta er hundfúlt og ömurlegt að enda þetta svona," sagði Fanndís Friðriksdóttir eftir 3-0 tap gegn Sviss í lokaleik liðsins á EM í Hollandi.
Lestu um leikinn: Ísland 0 - 3 Austurríki U20
„Við ætluðum okkur allar að enda þetta almennilega fyrir okkur og ykkur sem fjallið um okkur og allt fólkið sem hefur komið að horfa á okkur. Það gekk ekki upp í dag, við náðum okkur aldrei á strik," sagði Fanndís sem er fúl með niðurstöðuna í mótinu.
„Við settum okkur markmið sem voru fullkomlega raunsæ. Það er stutt á milli í þessu. Það er glatað að enda þetta á því að fá á sig þrjú mörk í kvöld. Ég veit ekki hver almennileg skýring er á þessu akkúrat núna."
Fanndís viðurkennir að sóknarleikur liðsins í mótinu hafi ekki verið upp á marga fiska.
„Þetta er mjög skemmtilegt kerfi. Þegar við vinnum boltann hátt á vellinum þá eru við margar uppi en sóknarleikurinn hjá okkur á þessu móti gekk ekkert sérstaklega vel upp."
„Mér leið eins og við værum aldrei með leikinn. Boltinn skoppaði fram og til baka og þær voru ákveðnari í allt," sagði Fanndís að lokum.
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.
Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Athugasemdir