Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 28. júlí 2017 06:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Troy Deeney tæpur fyrir fyrsta leik
Deeney verður líklega ekki tilbúinn þegar nýtt tímabil byrjar
Deeney verður líklega ekki tilbúinn þegar nýtt tímabil byrjar
Mynd: Getty Images
Marco Silva, stjóri Watford segir að fyrirliði liðsins, Troy Deeney verði að öllum líkindum ekki tilbúinn þegar nýtt tímabil hefst í ensku úrvalsdeildinni.

Deeney missti af æfingaferð félagsins til Austurríki fyrr í þessum mánuði eftir að hafa farið í aðgerð vegna nárameiðsla.

Deeney er mikils metinn hjá Watford og missir hann ekki af mörgum leikjum. Á síðasta tímabili spilaði hann 40 leiki í öllum keppnum.

„Við verðum að bíða og sjá. Ég held að hann verði ekki tilbúinn fyrir fyrsta leik tímabilsins," sagði Silva.

Silva tók við Watford í síðasta mánuði en hann stýrði Hull á seinni hluta tímabilsins í fyrra. Hull féll úr deildinni en Silva var hrósað í hástert fyrir að snúa gengi liðsins við.
Athugasemdir
banner
banner