Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 28. júlí 2017 06:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Bouchalakis í Nottingham Forest (Staðfest)
Bouchalakis er genginn til liðs við Forest
Bouchalakis er genginn til liðs við Forest
Mynd: Getty Images
Andreas Bouchalakis hefur skrifað undir þriggja ára samning við enska Championship liðið Nottingham Forest eftir að hafa heillað forráðamenn liðsins á reynslu.

Þetta eru fimmtu félagaskiptin hjá Forest í sumar en Mark Warburton tók við liðinu í sumar.

Bouchalakis hóf ferilinn sinn hjá gríska liðinu Ergotelis áður en hann fór til gríska stórliðsins Olympiakos árið 2013.

Hann vann þrjá deildartitla á fjórum árum í Grikklandi og lék með liðinu í Evrópudeildinni og Meistaradeildinni.

Bouchalakis hefur tekið þátt í æfingaleikjum með Forest á undirbúningstímabilinu en nú er hann endanlega orðinn leikmaður liðsins.
Athugasemdir
banner