„Þetta er frábær tilfinning. Að vinna Stjörnuna á útivelli er ísinn ofan á kökuna," sagði Kaj Leó í Bartalsstovu eftir 2-1 sigur ÍBV á Stjörnunni í undanúrslitum Borgunarbikarsins í kvöld.
Kaj Leó átti stóran þátt í fyrra markinu og hann skoraði síðan sjálfur sigurmarkið. Gunnar Heiðar Þorvaldsson var við hlið hans inni á teignum en Kaj Leó ákvað að láta sjálfur vaða með góðum árangri.
„Ég sá hann sekúndubroti áður en ég skaut. Ég var búinn að ákveða að láta vaða á markið. Ég hitti hann fullkomlega út við fjærtstöngina," sagði Kaj Leó um markið.

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 2 ÍBV
Bikarúrslitaleikurinn fer fram laugardaginn 12. ágúst. Má búast við að Færeyingar mæti á leikinn að hvetja Kaj Leó?
„Það koma 150 áhorfendur úr heimabæ mínum á leik í september. Ég veit samt ekki hvort einhver komi á úrslitalekinn. Vonandi koma nokkrir," sagði Kaj Leó.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir