„Við náum einhverneginn að hitta á þessa leiki í bikarnum," sagði Hafsteinn Briem varnarmaður ÍBV við Fótbolta.net eftir að Eyjamenn tryggðu sér sæti í bikarúrslitum annað árið í röð með 2-1 sigri á Stjörnunni í kvöld.
Hafsteinn skoraði fyrra mark ÍBV í leiknum í kvöld en hann var þá réttur maður á réttum stað í vítateignum eftir að Kaj Leó í Bartalsstovu átti skot sem Haraldur Björnsson varði.
„Ég veit ekki alveg hvað fór í gegnum hausinn á mér. Ég hef ekki skorað neitt í sumar og mig langar að skora meira. Ég ákvað að taka sénsinn þarna. Þetta er bikarinn og við þurftum mark. Ég tók sénsinn og það heppnaðist vel."

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 2 ÍBV
ÍBV tapaði gegn Val í bikarúrslitunum í fyrra en liðið er reynslunni ríkari í ár.
„Við vitum hvernig þetta er og getum höndlað spennustigið betur. Það á bara eftir að hjálpa okkur. Við viljum klára þetta núna," sagði Hafsteinn.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir