Miðvörðurinn Michael Hector hefur gengið til liðs við Hull á láni frá Englandsmeisturum Chelsea.
Hector kemur frá Jamaíka en hann lék með Frankfurt á láni í þýsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Hector gekk til liðs við Chelsea árið 2015 en hefur verið lánaður í burtu öll tímabilin sín og á hann enn eftir að spila leik fyrir Chelsea.
„Þegar ég komst að því að Hull hefði áhuga á að fá mig á láni, þá var þetta auðveld ákvörðun," sagði Hector.
Hector mun hitta Ola Aina hjá Hull en hann er einnig á láni frá Chelsea. Talið er að fleiri leikmenn munu fara á láni frá Chelsea til Hull þar sem Leonid Slutsky, nýr stjóri Hull og Roman Abramovich, eigandi Chelsea eru miklir vinir.

Athugasemdir