Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 28. júlí 2017 07:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Heimild: vf.is 
Þróttur V. styrkir Héðin Mána í kvöld
Þróttarar styrkja gott málefni
Þróttarar styrkja gott málefni
Mynd: Þróttur Vogum
Þróttur Vogum hafa ákveðið að allur aðgangseyrir að næsta heimaleik félagsins muni renna til Héðins Mána Sigurðssonar.

Fyrir nokkrum mánuðum greindist Héðinn Máni með þriðja stigs krabbamein í höfði.

Héðinn Máni, sem er 18 ára gamall hefur leyft fólki að fylgjast með krabbameinsmeðferðinni á Snapchat en Héðin má finna undir nafninu heddimani.

Auk þess að allur aðgangseyrir að leiknum muni renna til Héðins Mána, mun knattspyrnudeild Þróttar senda fjöldapóst á styrktaraðila félagsins og hvetja þá til að leggja söfnunni lið.

Næsti heimaleikur Þróttar V. er gegn Kára í kvöld klukkan 20:00 á Vogabæjarvelli. Miðasalan opnar klukkan 19:00. Þá verður einnig hægt að setja í frjáls framlög í bauk á staðnum.

Á Facebook síðu Þróttar eru stuðningsmenn liðsins hvattir til að leggja inn á styrktarreikninginn 142-05-000590, kt. 640212-0390, komist þeir ekki á völlinn. Þá er einnig beðið um að láta útskýringuna „Héðinn“ fylgja með greiðslunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner