Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 28. júlí 2017 11:00
Magnús Már Einarsson
Ashley Fletcher til Middlesbrough (Staðfest)
Ashley Fletcher.
Ashley Fletcher.
Mynd: Getty Images
Middlesbrough hefur keypt framherjann Ashley Fletcher frá West Ham á 6,5 milljónir punda.

Hinn 21 árs gamli Fletcher skrifaði undir fjögurra ára samning hjá Boro.

Fletcher skoraði eitt mark í tuttugu leikjum með West Ham en hann kom til félagsins frá Manchester United í fyrra.

Middlesbrough féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor en félagið hefur eytt 30 milljónum punda í nýja framherja í sumar.

Auk Fletcher hafa þeir Assombalonga og Martin Braithwaite komið til félagsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner