Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 28. júlí 2017 11:30
Magnús Már Einarsson
Merino til Newcastle á láni (Staðfest)
Mynd: Newcastle
Newcastle hefur fengið spænska miðjumanninn Mikel Merino á láni frá Borussia Dortmund.

Hinn 21 árs gamli Merino var í spænska U21 árs landsliðinu sem endaði í öðru sæti á EM í sumar.

Merino lék með Osasuna áður en Dortmund fékk hann í sínar raðir í fyrra.

Hann er fimmti leikmaðurinn sem Newcastle fær í sumar en Christian Atsu, Florian Lejeune, Jacob Murphy og Javier Manquillo hafa allir bæst í hópinn þetta sumarið.
Athugasemdir
banner
banner
banner