Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 28. júlí 2017 14:00
Magnús Már Einarsson
Umboðsmaður Bale: Fáránlegar og heimskulegar fréttir
Mynd: Getty Images
„Þetta eru fáránlegar og heimskulegar fréttir," sagði Jonathan Barnett, umboðsmaður Gareth Bale, við BBC í dag.

Jonathan var þar spurður út í sögusagnir þess efnis að Bale sé á förum frá Real.

Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, hefur sagt að hann geti ekki lofað því að Bale, Cristiano Ronaldo og Karim Benzema verði áfram hjá félaginu.

Bale hefur oft verið orðaður við Manchester United og sá orðrómur hefur enn á ný farið af stað í vikunni.

Barnett blés hins vegar á allar sögusagnir um Bale í dag og segir að Walesverjinn sé ekki að fara neitt.
Athugasemdir
banner
banner