fös 28. júlí 2017 17:00
Magnús Már Einarsson
Gary Megson ráðinn aðstoðarstjóri WBA (Staðfest)
Gary Megson.
Gary Megson.
Mynd: Getty Images
Gary Megson hefur verið ráðinn aðstoðarstjóri Tony Pulis hjá West Bromwich Albion.

Megson þekkir vel til hjá WBA því hann stýrði liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrsta skipti í kringum aldamótin.

Megson stýrði WBA frá 2000 til 2004 áður en hann tók við Nottingham Forest árið 2005.

Síðan þá hefur Megson stýrt Leicester, Bolton og Sheffield Wednesday en hann hefur verið í frí frá fótbolta síðan hann hætti hjá síðastnefnda félaginu árið 2012.
Athugasemdir
banner
banner
banner