Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 02. ágúst 2017 12:30
Magnús Már Einarsson
Íslendingur æfir með Liverpool og Everton - Man Utd hefur áhuga
Rafal Stefán Daníelsson.
Rafal Stefán Daníelsson.
Mynd: .
Rafal Stefán Daníelsson, markvörður í 3. flokki Fram, er á faraldsfæti þessa dagana.

Rafal vakti athygli markmannsþjálfara Liverpool í Liverpool skóla Aftureldingar í Mosfellsbæ í júní. Rafal var í kjölfarið boðið að fara til Liverpool á reynslu á dögunum.

Í gegnum markmannsþjálfara Liverpool þá er Rafal einnig á leið til Englands í sex vikna ferð þar sem hann mun dvelja hjá Accrington Stanley.

Rafal æfir aftur með Liverpool í þeirri ferð auk þess sem hann mun fara og æfa með Everton.

Manchester United hefur einnig sýnt því áhuga að sjá Rafal þegar hann verður við æfingar hjá Acrington Stanley.

Rafal hefur undanfarna daga verið við æfingar hjá Ajax í Hollandi en hann fer síðan til Englands á föstudaginn.
Athugasemdir
banner
banner