Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 13. ágúst 2017 17:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Einkunnir Man Utd og West Ham: Matic og Lukaku frábærir
Matic var maður leiksins
Matic var maður leiksins
Mynd: Getty Images
Manchester United fer vel af stað í ensku úrvalsdeildinni.

Þeir hófu tímabil sitt gegn West Ham á heimvelli sínum í dag.

Romelu Lukaku fékk sannkallaða draumabyrjun. Hann skoraði fyrstu tvö mörk United í 4-0 sigri. Anthony Martial, sem kom inn á sem varamaður, gerði þriðja markið og Paul Pogba setti fjórða markið.

Sky Sports hefur tekið saman einkunnir eftir þennan leik og þar fá allir byrjunarliðsleikmenn Man Utd yfir 7 í einkunn. Enginn leikmaður West Ham fær það hátt fyrir frammistöðu sína.

Maður leiksins hjá Sky Sports var Nemanja Matic.

Einkunnir Man Utd: De Gea (7), Valencia (7), Jones (7), Bailly (7), Blind (7), Matic (9), Pogba (8), Mata (8), Mkhitaryan (8), Rashford (9), Lukaku (9).

Varamenn: Fellaini (6), Martial (7).

Einkunnir West Ham: Hart (6), Zabaleta (5), Reid (6), Ogbonna (6), Masuaku (5), Noble (6), Obiang (6), Fernandes (5), Ayew (5), Arnautovic (6), Hernandez (6)

Varamenn: Cresswell (6), Sakho (6), Rice (6)

Maður leiksins: Nemanja Matic
Athugasemdir
banner
banner