„Við ræddum í hálfleik að halda áfram á sömu braut, aðeins að gefa í fannst við ekki vera alveg nógu miklir tuddar i því sem við vorum að gera. Allir voða happy í hálfleik og svo erum við bara svo barnalegir í varnarleiknum, “ sagði Viðar Jónsson, þjálfari Leiknis F eftir 3-2 tapið í Laugardalnum í dag.
Lestu um leikinn: Fram 3 - 2 Leiknir F.
Spurður um verkefnið að halda liðinu í Inkasso sagði hann: „ Ég hef alveg trú á því, það er sex leikir eftir og þetta er alveg mögulegt. Við verðum að hafa trú á þessu. En ég skal alveg viðurkenna að markmiðin eru farin að breytast. Við erum að reyna að njóta þess meira að spila í þessari deild. “
Spurður um meiðsli Valdimars Inga í seinni hálfleik sagði hann: „ Það er í lagi með hann. Hann fékk smá skurð á höfuðið í vinnunni á mánudaginn, það var spurning hvort hann spilaði. Þetta var bara spurning um að taka ekki neina sénsa. “
Athugasemdir