banner
   mið 16. ágúst 2017 15:45
Magnús Már Einarsson
Liverpool
Gylfi tekur föstu leikatriðin af Rooney og Baines
Icelandair
Gylfi er geggjaður í föstum leikatriðum.
Gylfi er geggjaður í föstum leikatriðum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi fagnar markinu gegn Manchester United á síðasta tímabili.
Gylfi fagnar markinu gegn Manchester United á síðasta tímabili.
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson hefur lagt upp ófá mörkin fyrir Swansea með spyrnum sínum í föstum leikatriðum undanfarin ár. Gylfi er nú á leið til Everton en þar eru margir öflugir spyrnumenn í hópnum líkt og Wayne Rooney og Leighton Baines.

Líklegt þykir þó að Gylfi fái að sjá um föstu leikatriðin enda eru fáir leikmenn í ensku úrvalsdeildinni sem standast honum snúning þar.

„Það verður áhugavert að sjá hvað gerist því Rooney vill taka hornin. Miðað við tölfræðina, og öll mörkin sem Sigurðsson bjó til og skoraði fyrir Swansea úr föstum leikatriðum, þá hlýtur hann að vera fyrsti kostur," sagði Mike Keegan hjá Daily Mail við Fótbolta.net í dag.

Richard Graves hjá Sky Sports telur að barist verði um að taka föstu leikatriðin.

„Það er ekki bara Wayne Rooney því þeir eru líka með Leighton Baines. Það má búast við mikilli samkeppni um þetta á æfingavellinum en þetta veltur örugglega á því hvar boltinn er á vellinum. Þeir fá örugglega allir sín tækifæri, þetta eru mismunandi færi og leikir," sagði Graves en hann er sammála því að tölfræði Gylfa sé mögnuð í föstum leikatriðum.

„Hann sannaði það klárlega innan vallar í leikjum og það á stórum augnablikum í leikjum. Þið munið eftir leiknum á Old Trafford á síðustu leiktíð þegar hann skoraði þetta mikilvæga mark fyrir Swansea. Hann er vel slípaður leikmaður sem getur ráðið úrslitum þegar hann tekur ákvarðanir. Ég held að Ronald Koeman líki best við það hjá honum. Hann getur séð sendingu og tækifæri og opnað leikina," sagði Graves.

Sjá einnig:
Risa viðtal við Gylfa um félagaskiptin
Uppboð: Everton treyja árituð af Gylfa - Hæsta boð 200 þúsund
Myndband: Gylfi kynntur fyrir stuðningsmönnunum í kvöld
Gylfi: Skil við Swansea á góðum nótum
Gylfi: Gæti tekið 1-2 ár að spila í Meistaradeildinni
Gylfi: Væri synd að taka föstu leikatriðin frá mér
Gylfi var kynntur með víkingaklappi - Ætlar sjálfur ekki að stjórna því
Koeman hefur reynt að kaupa Gylfa í mörg ár
Gylfi um svakalegt leikjaprógram: Þetta er það sem maður vill gera
Gylfi: Frábært að íslensku félögin fá hluta af upphæðinni
Gylfi: Margir dagar sem maður bjóst við að eitthvað myndi koma upp á
Everton eina liðið sem Gylfi hafði áhuga á - Reyndu við hann í fyrra
Gylfi: Hlakka mjög mikið til að spila með Rooney
Gylfi reiknar með að spila á miðjunni hjá Everton
Gylfi: 14 árum seinna fékk ég loksins samning hérna
Gylfi kominn með treyjunúmer - Tekur númerið af Barry
Stuðningsmenn Swansea í sárum - Farnir að bóka fall
Gylfi þá og nú í Everton búningi
Koeman: Gerðum allt til að fá Gylfa
Gylfi: Þetta er félag með mikinn metnað
Gylfi orðinn leikmaður Everton (Staðfest)
Tottenham græðir vel á sölu Gylfa til Everton
Gylfi tekur föstu leikatriðin af Rooney og Baines
Fréttamaður Sky: Koeman brosti út að eyrum þegar hann talaði um Gylfa
Telur að Everton muni byggja liðið í kringum Gylfa
„Vinnum deildina og Meistaradeildina eftir kaupin á Gylfa"
Gylfi spilar mögulega gegn Manchester City
Koeman um Gylfa: Þurfum mörk í stað Lukaku
Gylfi stóðst læknisskoðun - Skrifar undir í dag
Sjö staðreyndir sem sýna að Gylfi er hverrar krónu virði
Ekki há upphæð ef Gylfi kemur Everton í Meistaradeildina
Svona skiptast milljónir Gylfa - Breiðablik og FH fá 90 milljónir
Ian Wright: Hörmulegt fyrir Swansea að missa Gylfa
Dýrustu fótboltamenn sögunnar - Gylfi verður á topp 40
Athugasemdir
banner
banner
banner