Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 16. ágúst 2017 18:45
Magnús Már Einarsson
Liverpool
Gylfi orðinn leikmaður Everton (Staðfest)
Icelandair
Gylfi skrifaði undir fimm ára samning.
Gylfi skrifaði undir fimm ára samning.
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson er formlega orðinn leikmaður Everton en félagið hefur loks staðfest þetta. Viðræður milli Everton og Swansea tóku stærstan hluta sumarsins en nú er íslenski miðjumaðurinn kominn í bláa búninginn hjá Everton.

Hann skrifaði undir fimm ára samning.

Gylfi verður 28 ára þann 8. september næstkomandi en hann er dýrasti íþróttamaður Íslands frá upphafi og næst dýrasti fótboltamaður norðurlanda. Þá er hann dýrasti leikmaður í sögu Everton. Kaupverðið er um 45 milljónir punda.

Ronald Koeman, stjóri Everton, tilkynnti það á fréttamannafundi í dag að Gylfi hefði staðist læknisskoðun hjá félaginu.

Koeman sagði jafnframt að Gylfi væri að sínu mati einn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar. Íslendingurinn fór á kostum með Swansea á síðasta tímabili og á risastóran þátt í því að liðið hélt sæti sínu í deild þeirra bestu.

Gylfi ber titilinn íþróttamaður ársins á Íslandi en hann hefur verið algjör lykilmaður í uppgangi íslenska landsliðsins. Alls hefur hann skorað 15 mörk í 50 landsleikjum fyrir Ísland.

Á meistaraflokksferli sínum hefur Gylfi bara leikið erlendis og verið í herbúðum Reading, Hoffenheim, Tottenham og Swansea. Hann er uppalinn hjá FH en fór í Breiðablik áður en hann hélt í atvinnumennskuna.

Everton vann 1-0 sigur gegn Stoke í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili þar sem Wayne Rooney skoraði sigurmarkið. Gylfi gæti tekið þátt í næsta leik liðsins sem er gegn Manchester City á mánudaginn.

Everton hefur látið til sín taka í glugganum og fengið Wayne Rooney, Jordan Pickford, Michael Keane, Davy Klaassen og Sandro Ramirez á Goodison Park.



Sjá einnig:
Risa viðtal við Gylfa um félagaskiptin
Uppboð: Everton treyja árituð af Gylfa - Hæsta boð 200 þúsund
Myndband: Gylfi kynntur fyrir stuðningsmönnunum í kvöld
Gylfi: Skil við Swansea á góðum nótum
Gylfi: Gæti tekið 1-2 ár að spila í Meistaradeildinni
Gylfi: Væri synd að taka föstu leikatriðin frá mér
Gylfi var kynntur með víkingaklappi - Ætlar sjálfur ekki að stjórna því
Koeman hefur reynt að kaupa Gylfa í mörg ár
Gylfi um svakalegt leikjaprógram: Þetta er það sem maður vill gera
Gylfi: Frábært að íslensku félögin fá hluta af upphæðinni
Gylfi: Margir dagar sem maður bjóst við að eitthvað myndi koma upp á
Everton eina liðið sem Gylfi hafði áhuga á - Reyndu við hann í fyrra
Gylfi: Hlakka mjög mikið til að spila með Rooney
Gylfi reiknar með að spila á miðjunni hjá Everton
Gylfi: 14 árum seinna fékk ég loksins samning hérna
Gylfi kominn með treyjunúmer - Tekur númerið af Barry
Stuðningsmenn Swansea í sárum - Farnir að bóka fall
Gylfi þá og nú í Everton búningi
Koeman: Gerðum allt til að fá Gylfa
Gylfi: Þetta er félag með mikinn metnað
Gylfi orðinn leikmaður Everton (Staðfest)
Tottenham græðir vel á sölu Gylfa til Everton
Gylfi tekur föstu leikatriðin af Rooney og Baines
Fréttamaður Sky: Koeman brosti út að eyrum þegar hann talaði um Gylfa
Telur að Everton muni byggja liðið í kringum Gylfa
„Vinnum deildina og Meistaradeildina eftir kaupin á Gylfa"
Gylfi spilar mögulega gegn Manchester City
Koeman um Gylfa: Þurfum mörk í stað Lukaku
Gylfi stóðst læknisskoðun - Skrifar undir í dag
Sjö staðreyndir sem sýna að Gylfi er hverrar krónu virði
Ekki há upphæð ef Gylfi kemur Everton í Meistaradeildina
Svona skiptast milljónir Gylfa - Breiðablik og FH fá 90 milljónir
Ian Wright: Hörmulegt fyrir Swansea að missa Gylfa
Dýrustu fótboltamenn sögunnar - Gylfi verður á topp 40
Athugasemdir
banner
banner