Fiorentina hefur keypt sóknarmanninn Giovanni Simeone frá Genona fyrir kaupverð sem gæti farið í 18 milljónir evra.
Sá argentíski skrifaði undir samning til 2022 við Fiorentina.
Sá argentíski skrifaði undir samning til 2022 við Fiorentina.
Þrátt fyrir að vera fæddur árið 1995 er Giovanni mjög sigursæll leikmaður. Hann hefur unnið argentísku úrvalsdeildina, meistaradeildina í Suður-Ameríku og fleiri góða titla.
Síðasta tímabil var hans fyrsta í Seríu A. Hann skoraði 13 mörk í 36 leikjum með Genoa og vakti athygli fyrir frammistöðu sína.
Hann er sonur Diego Simeone, þjálfara Atletico Madrid.
Athugasemdir