Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 16. ágúst 2017 22:54
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Real Madrid spænskur Ofurbikarmeistari
Mynd: Getty Images
Real Madrid 2 - 0 Barcelona (Samanlagt 5 - 1)
1-0 Marco Asensio ('4)
2-0 Karim Benzema ('39)

Spánar- og Evrópumeistarar Real Madrid bættu enn einum titliinum í safnið í kvöld. Þeir unnu spænska ofurbikarinn eftir tveggja leikja einvígi gegn spænsku bikarmeisturunum í Barcelona.

Cristiano Ronaldo stal senunni í fyrri leiknum, en hann fékk rautt spjald og fimm leikja bann í kjölfarið. Eftir að hafa fengið rauða spjaldið ýtti Ronaldo dómaranum og fékk því fimm leikja bann.

Ronaldo var ekki með í kvöld, en þrátt fyrir það vann Real Madrid leikinn frekar sannfærandi. Marco Asensio skoraði fyrsta markið, en að var stórkostlegt. Karim Benzema bætti síðan við.

Lokatölur 2-0 fyrir Real Madrid og þeir vinna þetta einvígi samanlagt 5-1 eftir 3-1 sigur í fyrri leiknum. Það er gott tímabil í vændum.





Athugasemdir
banner
banner
banner
banner