Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 17. ágúst 2017 14:07
Elvar Geir Magnússon
Coutinho ekki með gegn Palace - Sturridge klár
Philippe Coutinho, leikmaður Liverpool.
Philippe Coutinho, leikmaður Liverpool.
Mynd: Getty Images
„Þetta er rosalega erfið staða en við höfum ekkert nýtt að segja. Það er ekki alltaf auðvelt að segja 100% sannleikann," sagði Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, þegar hann var spurður út í málefni Brasilíumannsins Philippe Coutinho.

Coutinho verður ekki með Liverpool gegn Crystal Palace á laugardaginn en skýring félagsins er sú að hann sé enn að glíma við meiðsli í baki.

Framkvæmdastjóri Barcelona hefur sagt að félagið sé nálægt því að krækja í þennan 25 ára Brasilíumann sem fór fram á sölu í síðustu viku, stuttu eftir að Liverpool hafnaði 90 milljóna punda tilboði frá spænska stórveldinu.

„Ég veit ekki af hverju annað fólk er að segja þetta, ég þekki það ekki einu sinni. Ég hef aldrei hitt þennan gaur," sagði Klopp um um ummæli framkvæmdastjórans.

Coutinho hefur ekki spilað með Liverpool í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins og nú er ljóst að hann verður líka fjarri góðu gamni gegn Palace.

Klopp segir að sóknarmaðurinn Daniel Sturridge, sem mistti af byrjun tímabilsins vegna meiðsla, verði klár í slaginn á laugardaginn.

Liverpool gerði 3-3 jafntefli við Watford í fyrstu umferð deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner