fös 18. ágúst 2017 06:00
Elvar Geir Magnússon
Palacio yfirgefur Inter og gengur í raðir Bologna (Staðfest)
Palacio er kominn til Bologna.
Palacio er kominn til Bologna.
Mynd: Getty Images
Argentínski sóknarmaðurinn Rodrigo Palacio er genginn í raðir Bologna, liðsins sem hafnaði í 15. sæti ítölsku A-deildarinnar á síðasta tímabili.

Palacio kemur á frjálsri sölu en samningur hans við Inter var útrunninn og hann fékk ekki nýtt samingsboð.

Palacio er 35 ára og hefur verið á Ítalíu síðan 2009, hann sló í gegn hjá Genoa áður en hann gekk í raðir Inter 2012.

„Ég er mjög ánægður með að vera kominn hingað. Ég er mjög hrifinn af æfingaaðstöðunni, ég bjóst ekki við því að hún væri svona góð," segir Palacio.

„Það eru margir ungir leikmenn hérna og ég vonast til að geta miðlað af reynslu minni í klefanum líka."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner