Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 18. ágúst 2017 13:30
Magnús Már Einarsson
Conte: Fyndið viðtal við Costa
Antonio Conte.
Antonio Conte.
Mynd: Getty Images
Antonio Conte, stjóri Chelsea, tjáði sig stuttlega um Diego Costa á fréttamannafundi í dag.

Costa er ekki í áætlunum Conte hjá Chelsea en framherjinn hefur ekki mætt til æfinga hjá liðinu eftir sumarfrí.

Í vikunni hefur Costa farið í nokkur viðtöl og í því nýjasta bað hann Chelsea um að lækka verðmiðann á sér til að geta farið til Atletcio Madrid en það er draumaáfangastaður hans.

„Það er frábært," sagði Conte léttur í bragði um nýjasta viðtal Costa.

„Ég get sagt ykkur að allir sem vinna hjá Chelsea vita vel hvað gerðist með hann á síðasta tímabili. Þetta er fyndið viðtal. Ég hef ekki áhuga á að halda þessu máli áfram. Það er í fortíðinni."


Athugasemdir
banner
banner