Coleen Rooney, eiginkona fótboltamannsins Wayne Rooney, hefur staðfest það að þau eigi von á sínu fjórða barni. Fyrir eiga þau þrjá syni; Kai sjö ára, Klay fjögurra ára og Kit eins árs.
So Happy!!! ..... Never denied the news, but I was always protecting it!! Had scan & all checks are fine.....Baby number 4 is on its way. 😍
— Coleen Rooney (@ColeenRoo) August 18, 2017
Ensk slúðurblöð hafa um nokkurn tíma verið með fréttir um að Coleen væri ólétt á ný en hún vildi ekki staðfesta það fyrr en í morgun.
Coleen sagði í viðtali á dögunum að það yrði góð viðbót við fjölskylduna að eignast stelpu. Hún hefur þó ekki opinberað hvort kynið sé á leiðinni eða hvort hún hafi vitneskju um það.
Rooney gekk í raðir Everton á nýjan leik eftir síðasta tímabil en í vikunni fékk hann íslenskan liðsfélaga þegar Gylfi Þór Sigurðsson mætti.
„Þegar maður var að alast upp þá horfði maður mikið á toppliðin. Rooney hefur verið í miklu uppáhaldi hjá öllum krökkum síðustu 10-15 ár. Hann er markahæsti leikmaður enska landsliðsins og ekki langt frá því að vera leikjahæstur líka. Það er mikil reynsla í honum og mikil gæði eins og hann sýndi um síðustu helgi," sagði Gylfi um Rooney í viðtali við Fótbolta.net.
„Hann er frábær leikmaður og ég hlakka mjög mikið til að spila með honum eins og öllu liðinu."
Athugasemdir