Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 18. ágúst 2017 21:40
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Tolisso og Süle skoruðu í fyrsta leik fyrir Bayern
Robert Lewandowski skoraði þriðja mark Bayern
Robert Lewandowski skoraði þriðja mark Bayern
Mynd: Getty Images
Bayern München 3 - 1 Bayer Leverkusen
1-0 Niklas Sule ('9 )
2-0 Corentin Tolisso ('19 )
3-0 Robert Lewandowski ('52 , víti)
3-1 Admir Mehmedi ('65 )

Bayern München vann fyrsta leik tímabilsins 3-1 er liðið fékk Bayer Leverkusen í heimsókn. Corentin Tolisso skoraði fyrsta deildarmark sitt fyrir félagið.

Niklas Süle kom Bayern yfir á 9. mínútu leiksins en hann kom frá Hoffenheim í sumar. Sebastian Rudy lagði upp markið en aðeins tíu mínútum síðar bætti Corentin Tolisso við öðru marki.

Hann kom til félagsins frá Lyon í sumar og er strax farinn að láta til sín taka. Það kom síðan engum á óvart að Robert Lewandowski skoraði á 52. mínútu, úr vítaspyrnu.

Admir Mehmedi minnkaði muninn á 65. mínútu en lengra komst liðið ekki og 3-1 sigur Bayern staðreynd.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner