Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fös 18. ágúst 2017 22:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stebbi Gísla: Það fengu allir fullt fyrir peninginn
Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson
Haukar unnu í kvöld Keflavík í einhverjum ótrúlegasta fótboltaleik sem undirskrifaður hefur séð. Haukar höfðu betur, 4-2, eftir að hafa lent 2-0 undir í byrjun seinni hálfleiksins. Þá tóku Haukarnir sig saman í andlitinu og unnu að lokum 4-2 sigur.

Er ekki skemmtilegast að vinna fótboltaleiki á þennan hátt? Að þessu var Stefán Gíslason, þjálfari Hauka, spurður að eftir leik kvöldsins.

„Það var að minnsta kosti virkilega ljúft í kvöld," sagði Stefán þegar Fótbolti.net ræddi við hann að leik loknum.

Lestu um leikinn: Haukar 4 -  2 Keflavík

„Það fengu allir fullt fyrir peninginn sem þeir greiddu í kvöld. Það er alveg á hreinu. Þetta var opinn og fjörugur leikur."

„Við byrjuðum leikinn illa. Síðan finnst mér við ná betri tökum á þessu og mér fannst við flottir síðasta hálftímann í fyrri hálfleik. Við ræðum það í hálfleik að halda áfram. Við fáum svo mark í andlitið, enn eitt vítið. Það er reyndar magnað að við fáum ekki víti í þessum leik. Við fáum mark í andlitið strax í byrjun seinni hálfleiks, en svo sýnir liðið magnaðan karakter," sagði Stefán um leikinn.

Haukarnir eru á miklu skriði og það er langt síðan þeir töpuðu síðast fótboltaleik. Þeir eru með í þessum stóra pakka á toppnum.

„Við erum að safna stigum og höngum í efstu liðunum. Það hefur verið planið okkar frá fyrsta leik að hanga í toppnum og stríða efstu liðunum. Við erum enn að gera það. Planið er að fagna í kvöld og svo byrjum við að undirbúa fyrir okkur gegn HK sem líka á skriði."

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan.





Athugasemdir
banner