Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
banner
   fös 18. ágúst 2017 22:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðlaugur: Hefði getað endað með 10-12 mörkum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var sérstakur leikur," sagði Guðlaugur Baldursson, þjálfari Keflavíkur, eftir 4-2 tap gegn Haukum í kvöld.

Keflavík komst í 2-0 í leiknum, en glutraði því niður á skömmum tíma.

„Það var ofboðslega mikið um færi. Einhverjir hefðu orðað þetta þannig að þetta væri 'end to end stuff'. Þeir nýttu tvö færi og jöfnuðu 2-2. Síðan erum við inn í markteig og náum ekki að klára það dæmi. Þeir fara upp og skora 3-2 og síðan bætum við aðeins í sóknarleikinn og þeir refsa okkur með marki," sagði Guðlaugur.

Lestu um leikinn: Haukar 4 -  2 Keflavík

„Þessi leikur hefði getað endað með 10-12 mörkum."

Það var mikill í hiti í mönnum í kvöld og leikurinn var erfiður fyrir dómarann. Þrátt fyrir það var Guðlaugur ekki ósáttur.

„Tapið var ekki honum að kenna. Þeir gengu eins langt og dómarinn leyfði og það er bara eins og það er."

„Við eigum að spila við ÍR næst og það verður virkilega erfiður leikur. Við ætlum að reyna allt sem við getum til að fá þrjú stig í þeim leik," sagði Guðlaugur að lokum í viðtali við Fótbolta.net.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner