Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 19. ágúst 2017 14:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bolasie glaður með Gylfa - „Sjálfur maðurinn"
Mynd: Getty Images
Eins og allir ættu að vita þá er Gylfi Þór Sigurðsson mættur til Everton. Hann var keyptur þangað fyrir 45 milljónir punda frá Swansea á miðvikudaginn síðasta.

Gylfi hefur notað síðustu daga, frá því hann kom til Everton, í að kynnast nýjum liðsfélögum sínum betur. Miðað við myndir á samfélagsmiðlum hefur það gengið vel.

Sjá einnig:
Enska hringborðið - Everton og Gylfi í brennidepli

Yannick Bolasie, leikmaður Everton, birti mynd á Twitter. Þar eru hann og Gylfi í góðum gír.

„Sjálfur maðurinn," skrifar Bolasie, sem er greinilega glaður með komu Gylfa, við myndina.

Hér að neðan er þessi flotta mynd.



Athugasemdir
banner
banner
banner