Championship-deildin er alltaf skemmtileg. Núna fyrir stuttu voru níu leikir að klárast í henni. Það eru í heildina 11 leikir í dag. Það var leikur í hádeginu og síðan er leikur Sunderland og Leeds á eftir.
Aron Einar Gunnarsson og félagar hans í Cardiff eru á toppi deildarinnar. Í dag unnu þeir Wolves, 2-1.
Landsliðsfyrirliðinn spilaði allan leikinn og stjórnaði miðju Cardiff.
Hörður Björgvin Magnússon var allan tímann á bekknum hjá Bristol City í markalausu jafntefli og Birkir Bjarnason kom heldur ekki við sögu hjá Aston Villa í 4-2 sigri á Norwich.
Birkir og Hörður hafa spilað lítið á þessu tímabili.
Jón Daði Böðvarsson er enn meiddur. Hann spilaði ekki með Reading í 1-0 tapi gegn Preston North End.
Hér að neðan eru úrslit og markaskorarar úr leikjunum sem voru að klárast. Ipswich og Cardiff eru á toppnum með fullt hús stiga.

Aston Villa 4 - 2 Norwich
1-0 Conor Hourihane ('23 )
2-0 Andre Green ('42 )
2-1 Jacob Murphy ('60 )
3-1 Conor Hourihane ('68 )
3-2 Nelson Oliveira ('79 )
4-2 Conor Hourihane ('85 )
Bolton 1 - 2 Derby County
0-1 David Nugent ('8 )
0-2 David Nugent ('21 )
1-2 Gary Madine ('90 )
Bristol City 0 - 0 Millwall
Fulham 0 - 1 Sheffield Wed
0-1 Steven Fletcher ('63 )
Ipswich Town 2 - 0 Brentford
1-0 Martyn Waghorn ('34 )
2-0 Joe Garner ('51 )
Nott. Forest 2 - 1 Middlesbrough
1-0 Barrie McKay ('15 )
2-0 Daryl Murphy ('80 , víti)
2-1 Ben Gibson ('83 )
Preston NE 1 - 0 Reading
1-0 Jordan Hugill ('22 )
QPR 2 - 1 Hull City
0-1 Jarrod Bowen ('35 )
1-1 Matt Smith ('74 )
2-1 Idrissa Sylla ('91)
Wolves 1 - 2 Cardiff City
0-1 Joe Ralls ('54 )
1-1 Leo Bonatini ('67 )
1-2 Nathaniel Mendez-Laing ('77 )
Leikur Sunderland og Leeds hefst 16:30. Þar er Chris Wood, sóknarmaður ekki í hóp. Hann er á leið til Burnley..
Chris Wood has made himself unavailable for tonight's Leeds match against Sunderland due to interest from Burnley. (Source: @officialcwood) pic.twitter.com/JqoNN2rr4m
— Transfer News Live (@DeadlineDayLive) August 19, 2017
Athugasemdir