Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 19. ágúst 2017 20:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Chris Wood á leið í læknisskoðun hjá Burnley
Mynd: Getty Images
Burnley er að kaupa framherja frá Leeds samkvæmt heimildum Sky Sports.

Chris Wood er leikmaðurinn og hann mun fara í læknisskoðun hjá Burnley á morgun.

Félögin náðu samkomulagi í dag um kaupverðið á þessum 25 ára gamla framherja.

Talið er að Burnley muni borga 15 milljónir punda fyrir Chris Wood sem á að baki 52 landsleiki fyrir landslið Nýja-Sjálands.

Hann kemur til með að fylla í skarð Andre Gray sem fór til Watford á dögunum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner