Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 20. ágúst 2017 07:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Sam Clucas á leið frá Hull
Sam Clucas.
Sam Clucas.
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Sam Clucas er á leið frá Hull en þetta staðfesti knattspyrnustjóri félagsins í gær.

Leonid Slutsky stjóri Hull var spurður út í það eftir leik QPR og Hull í gær afhverju Clucas hafi ekki verið í hóp.

Svar Leonid Slutsky var, „hann er að undirbúa sig undir það að spila fyrir annað félag."

Það er spurning hvar Sam Clucas spilar næst en Burnley og Swansea hafa verið nefnd sem líklegir áfangastaðir.
Athugasemdir
banner