Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 20. ágúst 2017 16:40
Stefnir Stefánsson
Mourinho: Swansea verður að eyða Gylfapeningnum
Mourinho
Mourinho
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að Swansea City verði að eyða þessum 45 milljónum punda sem að þeir fengu fyrir söluna á Gylfa Þóri Sigurðssyni.

Swansea eru sagðir vera að ganga frá kaupunum á Sam Clucas frá Hull City.

Í fyrsta leik Swansea án Gylfa, fóru lærisveinar Mourinho ansi illa með liðið þegar þeir völtuðu yfir þá 4-0.

„Ég vona að hann fái eitthvað af þessum pening til leikmannakaupa, hann gerði frábæra hluti í fyrra" sagði Mourinho um kollega sinn Paul Clement eftir leikinn.

„Þeir eru með eitt stig eftir fyrstu tvo leikina, stigið fengu þeir gegn liði sem að mun verða í einu af efstu 6-7 sætunum. Svo að þeir þurfa ekki að hengja haus."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner