banner
   mán 21. ágúst 2017 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Iniesta: Mér hefur aldrei liðið svona áður
Mynd: Getty Images
Samningur Andres Iniesta hjá Barcelona rennur út næsta sumar. Hann er ekki viss um að hann verði áfram hjá félaginu.

Iniesta hefur verið í viðræðum um nýjan samning, en hann er ekki enn búinn að skrifa undir neitt.

Hann hefur aldrei verið eins óviss um framtíð sína.

„Ég hef ekki enn skrifað undir nýjan samning," sagði Iniesta við spænska dagblaðið El Pais. „Ég hef fundið fyrir skrýtnum tilfinningum í fyrsta sinn, en það eðlilegt."

„Ég hefði aldrei getað ímyndað mér þetta fyrir þremur árum. Ég er að íhuga framtíð mína," sagði hinn 33 ára gamli Iniesta.
Athugasemdir
banner
banner
banner