„Meiningin var að fara inn og vinna leikinn," sagði Logi Ólafsson, þjálfari Víkings R., eftir 1-0 tap gegn KA í kvöld.
„Við fáum á okkur mark í byrjun, en eftir það náum við virkilega góðum tökum á leiknum. Þó við séum einum færri þá náum við að vera það lið sem skapar betri færi heldur en mótherjinn."
„Við fáum á okkur mark í byrjun, en eftir það náum við virkilega góðum tökum á leiknum. Þó við séum einum færri þá náum við að vera það lið sem skapar betri færi heldur en mótherjinn."
Lestu um leikinn: Víkingur R. 0 - 1 KA
„Ég er mjög ánægður með allt nema markið."
Logi vildi fá vítaspyrnu í leiknum.
„Það hefði mátt horfa til þess að við áttum kannski að fá vítaspyrnu þegar brotið er á mönnum. Alex Freyr var í dauðafæri og hittir boltann, en það er greinilega brotið á honum. Það er hangið mjög mikið á okkar mönnum í fyrirgjöfum og það er ekki dæmt. Ég tel að við hefðum að minnsta kosti átt að fá eina, tvær vítaspyrnur."
Túfa, leikmaður Víkinga, fékk umdeilt rautt spjald í fyrri hálfleik. Logi vill meina að leikmaður KA hafi líka átt að fá rautt spjald.
„Ef hann fer í andlitið á honum með fótinn, og ef það er rautt spjald, þá finnst mér að það eigi líka að gilda hinum megin."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir